Viðurkenningar fyrir knattþrautir stúlkna afhentar í hálfleik
Eins og kynnt hefur verið hafa knattþrautir KSÍ staðið yfir í allt sumar hjá félögum víðs vegar um landið. Á landsleik Íslands og Frakklands á laugardag verður tæplega fimmtíu stúlkum sem tóku þátt í knattþrautunum veitt viðurkenning fyrir frábæra ástundun og framfarir í knatttækni.
Viðurkenningarnar verða afhentar í hálfleik og mun Geir Þorsteinsson formaður KSÍ njóta aðstoðar nokkurra leikmanna kvennalandsliðsins við afhendinguna.