U17 og U19 kvenna leika í Búlgaríu í september
Ólafur Þór Guðbjörnsson landsliðsþjálfari U19 kvenna og Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari U17 kvenna hafa tilkynnt undirbúningshópa sína fyrir undankeppni EM 2011. Bæði liðin leika í riðlakeppni í Búlgaríu í september.
23 leikmenn eru valdir í undirbúningshópana og verða síðan 18 leikmenn valdir í liðin sem leika í Búlgaríu. Þetta er gert þar sem mælt er með bólusetningum fyrir ferðalög til Búlgaríu með 3 vikna fyrirvara.