Fyrsta æfingin fyrir Frakkaleikinn
Eins og kunnugt er mætast Ísland og Frakkland í undankeppni HM 2011 kvenna á Laugardalsvelli á laugardag. Stelpurnar okkar komu saman til æfinga á miðvikudag og var æft á Hofstaðavelli í Garðabæ.
Mikil eftirvænting er í hópnum og leikmenn hlakka til verkefnisins. Vonast er eftir að sem flestir sjái sér fær að mæta á völlinn og styðja við bakið á leikmönnum liðsins í þessum mikilvæga leik.
KSÍ hefur ákveðið að standa fyrir fjölskylduhátíð í upphitun leiksins. Boðið verður upp á hoppukastala, grillaðar pylsur, knattþrautir og ýmislegt skemmtilegt. Hátíðin verður kynnt nánar síðar.