Knattþrautirnar á ferð og flugi um landið
Einar Lars hefur verið á ferð og flugi um landið síðustu daga með knattþrautir KSÍ. Þátttaka hefur verið afar góð og hafa krakkarnir skemmt sér konunglega og náð góðum árangri í þrautunum. Í þessum túr var farið á Sauðárkrók, Húsavík, Akureyri, Ólafsfjörð, Grenivík og Snæfellsnes. Næstu daga verða knattþrautirnar hjá félögum á höfuðborgarsvæðinu.