Lítt breyttur styrkleikalisti FIFA
Ísland situr áfram í 79. sæti á lítið breyttum styrkleikalista FIFA fyrir karlalandslið, sem gefinn var út í dag. Mjög lítið er um breytinga rá listanum, enda afar fáir leikir sem fara fram í mánuðinum eftir úrslitakeppni HM. Mótherjar Íslands í vináttulandselik kvöldsins, Liechtenstein, eru í 141. sæti. Ef aðeins Evrópa er tekin með í reikninginn er Ísland í 40. sæti og Liechtenstein í því 50.