1-1 jafntefli gegn Liechtenstein
Ísland og Liechtenstein mættust í vináttulandsleik A liða karla á Laugardalsvellinum í kvöld. Leikurinn var heldur bragðdaufur og niðurstaðan 1-1- jafntefli, sem líklegast var sanngjörn niðurstaða. Lítið var um opin færi í leiknum, sem var síðasti leikur íslenska liðsins fyrir undankeppni EM 2012, sem hefst með heimaleik við Norðmenn 3. september.
Ísland leiddi í hálfleik með marki frá Rúrik Gíslasyni á 20. mínútu. Rúrik skoraði þarna sitt fyrsta mark fyrir A-landsliðið með góðu skoti sem fór í stöngina og inn. Gestirnir jöfnuðu svo í síðari hálfleik, skallamark á fjærstöng eftir aukaspyrnu.