Ólafur Páll í landsliðið í stað Steinþórs
Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur dregið sig út úr landsliðshópnum fyrir vináttulandsleikinn við Liechtenstein á miðvikudag vegna meiðsla. Í hans stað hefur Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari valið Ólaf Pál Snorrason, leikmann FH.
Ólafur Páll hefur aldrei áður verið valinn í A-landsliðið, en hann hefur leikið fyrir öll yngri landslið Íslands. Leikur Íslands og Liechtensteins fer fram á Laugardalsvelli á miðvikudag og hefst kl. 19:30.