Ókeypis aðgangur á U21 landsleikinn í Krikanum
Ókeypis aðgangur er á leik U21 landsliða Íslands og Þýskalands, sem fram fer á Kaplakrikavelli á miðvikudag kl. 16:00. Þarna er komið gullið tækifæri til að sjá helstu framtíðarstjörnur þessara þjóða eigast við í gríðarlega mikilvægum leik í undankeppni EM 2011.
Íslenska liðið þarf á góðum stuðningi að halda úr stúkunni til að ná markmiði sínu, sem er sigur í leiknum. Fjölmennum í Krikann og styðjum vel við bakið á þessum ungu og efnilegu strákum! Frítt á völlinn!