Hjörtur út - Jósef inn
Breyting hefur verið gerð á U21 landsliðshópi Íslands. Vegna meiðsla Hjartar Loga Valgarðssonar hefur Eyjólfur Sverrison, þjálfari liðsins, ákveðið að kalla Jósef Kristin Jósefsson í hópinn sem leikur gegn Þjóðverjum á miðvikudag. Leikurinn, sem er gríðarlega mikilvægur liður í undankeppni EM 2011, fer fram á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði og hefst kl. 16:00.