Norðurlandamót U17 karla - Sætur sigur á Finnum
Strákarnir í U17 unnu sætan sigur á Finnum á Norðurlandamótinu sem fram fer í Finnlandi þessa dagana. Leiknum lauk með 2 -1 sigri Íslands en það voru heimamenn sem leiddu í leikhléi. Íslensku strákarnir komu svo sterkir inn í seinni hálfleikinn og tryggðu sér sigur með tveimur mörkum frá Fjalari Erni Sigurðarsyni og Arnari Aðalgeirssyni.
Strákarnir leika sinn síðasta leik í riðlakeppninni á morgun, föstudag, þegar þeir mæta Englendingum.