Norskur dómari dæmir leik HK og Gróttu í kvöld
Fjölmargir leikir eru á dagskránni í kvöld og þ.á.m. er heil umferð í 1. deild karla. Á leik HK og Gróttu á Kópavogsvelli verður norskur dómari við stjórnvölinn en hann heitir Håvard Hakestad. Er þetta hluti af samstarfi knattspyrnusambanda Norðurlandanna um dómaraskipti.
Håvard er 37 ára gamall, dæmir fyrir íþróttafélagið Trott í Noregi og hefur dæmt í 1. deildinni síðan 2006.