Tap hjá U18 karla gegn Svíum á Svíþjóðarmótinu
Strákarnir í U18 báðu lægri hlut gegn Svíum i gær en leikurinn var liður í Svíþjóðarmótinu sem fram fer þessa dagana. Lokatölur urðu 4 - 1 fyrir heimamenn eftir að staðan hafði verið 2 - 0 í leikhléi. Það var Hörður Björgvin Magnússon sem að skoraði mark Íslands úr vítaspyrnu.
Á laugardaginn leika strákarnir lokaleik sinn í mótinu þegar þeir mæta Norðmönnum en þeir gerðu jafntefli við Wales í gær. Íslenska liðið er sem stendur í öðru sæti á eftir heimamönnum.