Tryggðu þér miða á Danmörk - Ísland 7. september
Fyrsti útileikur Íslands í undankeppni fyrir EM 2012 verður gegn Dönum, þriðjudaginn 7. september, á Parken. Það er jafnan einstök stemning sem fylgir landsleikjum á Parken og margir Íslendingar sem hafa áhuga á að sjá okkar stráka eiga við Dani.
Þetta verður annar leikur Íslands í undankeppninni en fyrsti leikurinn verður gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli, föstudaginn 3. september. Miðasala á þann leik er nú í fullum gangi.
Hægt er að kaupa miða á leik Danmerkur og Íslands hér á síðunni og má finna nánari upplýsingar hér.
Mynd: Myndin er frá leik vináttulandsleik Danmerkur og Íslands sem fór fram í Árósum árið 1949. Danir höfðu sigur, 5 - 1 og skoraði Halldór Halldórsson mark Íslands. Þetta var fyrsti landsleikur Íslands á erlendri grundu en leikurinn þótti ákaflega prúðmannlega leikinn og til marks um það voru einungis dæmdar þrjár aukaspyrnur í leiknum.