U18 karla - Leikið við Wales á Svíþjóðarmótinu í dag
Strákarnir í U18 landsliðinu hefja í dag leik á Svíþjóðarmótinu þegar þeir mæta Wales og hefst leikurinn kl. 14:30 að íslenskum tíma. Leikið er á Laholm vellinum í Halland en auk þessara þjóða leika einnig Svíþjóð og Noregur og hefst þeirra leikur kl. 17:00.
Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn og er það þannig skipað.
Markvörður: Brynjar Örn Sigurðsson
Hægri bakvörður: Sverrir Ingi Ingason
Vinstri bakvörður: Bjarki Már Benediktsson
Miðverðir: Ásgrímur Rúnarsson og Hörður Björgvin Magnússon, fyrirliði
Tengiliðir: Kristján Gauti Emilsson, Einar Karl Ingvarsson og Emil Pálsson
Hægri kantur: Jón Gísli Ström
Vinstri kantur: Ingólfur Sigurðsson
Framherji: Bjarni Gunnarsson
Leikið verður svo við heimamenn á fimmtudaginn og Norðmenn á laugardaginn.