Knattþrautir KSÍ - Einar Lars heimsækir Reykjavíkurfélög í vikunni
Knattþrautirnar rúlla á fullri ferð við frábærar viðtökur en Einar Lars heimsækir nokkur Reykjavíkurfélög í vikunni. Einar heimsótti Vestfirði og Vesturland í síðustu viku. Þar var hann í frábæru veðri og fékk jafnvel enn betri móttökur.
Hér að neðan má sjá dagskrána fyrir vikuna en síðustu vikuna í júlí verða knattþrautirnar ekki á ferðinni en taka upp þráðinn að nýju eftir Verslunarmannahelgina. Þá verður Norðurland heimsótt og krakkarnir í 5. flokki fá að spreyta sig.
Hér neðst í fréttinni má sjá sjá myndir frá heimsóknum Einars en þar má sjá iðkendur á Ísafirði, Hólmavík, Búðardal, Bolungarvík og Patreksfirði.
Dagskráin fyrir vikuna er svohljóðandi:
Mánudaginn 19.júlí
ÍR
Mæting kl.17:30 Strákar kl.18:00
Þriðjudaginn 20.júlí
Leiknir Reykjavík
Mæting kl.13:30 Strákar kl.14:00
Miðvikudaginn 21.júlí
Haukar
Mæting kl.12:00 Strákar kl.12:30
Hamar Hveragerði
Mæting 16:30 Strákar og Stelpur kl.17:00
Fimmtudaginn 22.júlí
Stjarnan
Mæting kl.08:30 Stelpur kl.09:00
KR
Mæting kl. 14:30 Stelpur kl. 15:00