Fundir með fjölmiðlafulltrúum og öryggisstjórum félaga 2010
Leyfisstjóri hefur fundað með 11 af 12 félögum í Pepsi-deild karla á fyrstu tveimur mánuðum keppnistímabilsins. Þessir fundir eru haldnir með það fyrir augum að tryggja að félögin sem undirgangast leyfiskerfið uppfylli skilyrði um hæfni starfsmanna sem bera ábyrgð á þjónustu við fjölmiðla og málum tengdum öryggi og gæslu.
Farið er yfir öll helstu mál í leyfisreglugerð og Handbók leikja tengd öryggi og fjölmiðlum. Aðstæður skoðaðar á völlum félaganna, farið yfir hagnýt atriði, þjónustu, staðsetningar og annað sem skiptir máli tengt gæslu og þjónustu við fjölmiðla.
Daginn eftir heimsóknina/fundinn sendir leyfisstjóri skýrslu á viðkomandi félag með tölvupósti, þar sem farið er yfir hvað gekk vel og hvað mætti betur fara. Hér að neðan er yfirlit yfir fundina og þá sem tóku þátt fyrir hönd félaganna.
Fram
- Stefán Aðalbjörnsson öryggisstjóri og fjölmiðlafulltrúi
- Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri
Fundað hjá KSÍ 7. maí 2010
Selfoss
- Tómas Þóroddsson fjölmiðlafulltrúi
- Erling Huldarsson öryggisstjóri
Fundað á Selfossi 7. maí 2010
Valur og Haukar
Event Management ehf. er með öryggisstjórnun hjá báðum félögum
- Geir Garðarsson öryggisstjóri Hauka
- Theodór Valsson öryggisstjóri Vals
- Björgvin Brynjólfsson fjölmiðlafulltrúi Vals
- Arnar Daði Arnarsson fjölmiðlafulltrúi Hauka
Fundað á Vodafone-vellinum 10. maí 2010
Grindavík
- Eiríkur Leifsson framkvæmdastjóri
- Bergsteinn Ólafsson öryggisstjóri
- Sigurður Enoksson fjölmiðlafulltrúi
Fundað í Grindavík 17. maí 2010
Stjarnan
- Einar Einarsson framkvæmdastjóri
- Sara Rut Unnarsdóttir fjölmiðlafulltrúi
- Jóhann Ingi Jóhannsson öryggisstjóri
Fundað á Stjörnuvelli 20. maí 2010
KR
- Ótthar Magni fjölmiðlafulltrúi
- Jónas Kristinsson framkvæmdastjóri
Fundað á KR-vellinum 25. maí 2010
Fylkir
- Hermann Erlingsson öryggisstjóri
- Örn Hafsteinsson framkvæmdastjóri
Fundað á Fylkisvellinum 7. júní 2010
ÍBV
- Örn Hilmisson öryggisstjóri
- Trausti Hjaltason framkvæmdastjóri
Fundað í Týsheimili við Hásteinsvöll 25. júní 2010
Keflavík
- Hjördís Baldursdóttir fjölmiðlafulltrúi
- Ólafur Birgir Bjarnason öryggisstjóri
Fundað á Sparisjóðsvellinum í Keflavík 4. júlí 2010
FH
- Pétur Stephensen fjölmiðlafulltrúi og framkvæmdastjóri
- Kristinn Jóhannesson öryggisstjóri
- Fulltrúar Gæslu ehf., sem skaffa þjálfaða dyraverði og gæslumenn
Fundað á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði 8. júlí 2010