Byrjunarlið Íslands U17 kvenna gegn Þjóðverjum
Þorlákur Árnason, þjálfari U17 landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands, sem mætir Þjóðverjum í Opna Norðurlandamótinu í dag. Mótið fer fram í Danmörku og hefst leikurinn kl. 17:30 að íslenskum tíma.
Stelpurnar unnu góðan 1-0 sigurá Finnum í fyrsta leik, en reikna má með erfiðum leik í dag enda hafa Þjóðverjar verið nánast ósigrandi í yngri landsliðum kvenna síðustu ár.
Byrjunarliðið - Leikkerfi 4-5-1:
Markvörður
Arna Lind Kristinsdóttir
Hægri bakvörður
Anna María Baldursdóttir
Vinstri bakvörður
Svava Tara Ólafsdóttir
Miðverðir
Írunn Þorbjörg Aradóttir (fyrirliði) og Ingunn Haraldsdóttir
Tengiliðir
Lára Kristín Pedersen, Sigríður Lára Garðarsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir
Hægri kantur
Eva Núra Abrahamsdóttir
Vinstri kantur
Heiðrún Sunna Sigurðardóttir
Framherji
Aldís Kara Lúðvíksdóttir
U17 á Facebook
Hægt er að fylgjast með stelpunum á Facebook-síðu KSÍ. Þar er hægt að skoða myndir og fleira skemmtilegt efni frá mótinu.