Þjálfaranámskeið á haustmánuðum 2010
Búið er að ákveða dagsetningar fyrir þjálfaranámskeið KSÍ sem haldin verða nú á haustmánuðum. Einnig má sjá drög af dagskrá fyrir fyrstu mánuði 2011. Athygli er vakin á því að endurmenntunanámskeið og önnur námskeið verða auglýst sérstaklega. Í flestum tilfellum eru námskeið haldin í Reykjavík en þau eru haldin einnig úti á landi eftir óskum og/eða þörfum.
Dagskrá 2010
- 1-3. október KSÍ I
- 8-10. október KSÍ I
- 15-17. október KSÍ II
- 22-24. október KSÍ II
- 29-31. október KSÍ III
- 5-7. nóvember KSÍ V
- 12-14. nóvember Afmælisráðstefna KÞÍ og endurmenntunarnámskeið með erlendum fyrirlesurum
- 22-24. nóvember Norðurlandaráðstefna knattspyrnusambandanna haldin á Íslandi
- 26-28. nóvember Nýtt KSÍ þjálfaranámskeið um markmannsþjálfun.
Dagskrá 2011
- Janúar 2011 KSÍ VI vikunámskeið erlendis (sennilega á Englandi)
- Janúar 2011 KSÍ IV
- Febrúar 2011 KSÍ B (UEFA B) skriflegt próf
- Febrúar 2011 KSÍ A (UEFA A) skriflegt próf
- Febrúar-Apríl 2011 KSÍ VII um allt land
- Mars/apríl 2011KSÍ V
Námskeið úti á landi verða haldin eftir þörfum/óskum.
Endurmenntunarnámskeið og önnur námskeið verða auglýst sér.