Knattþrautir KSÍ - Bolti í Breiðholtinu
Einar Lars verður með knattþrautir KSÍ í Breiðholtinu í dag þar sem hann heimsækir Breiðholtsfélögin Leikni og ÍR. Vestmannaeyjar voru heimsóttar í gær en hvarvetna hefur vel verið tekið á móti Einari og krakkarnir sýnt þrautunum mikinn áhuga.
Hér að neðan má sjá myndir af heimsóknum Einars til Fjölnis, Fram og Ægis.