Hópurinn hjá U16 kvenna - Norðurlandamótið í júlí
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur valið hóp sinn er tekur þátt á Norðurlandamótinu í Danmörku 5. - 10. júlí næstkomandi. Hópinn skipa 18 leikmenn og koma þeir frá 12 félögum. Ísland er í riðli með Finnlandi, Þýskalandi og Svíþjóð en auk leikja gegn þessum þjóðum verður leikið um sæti á mótinu.