Ísland - Króatía á þriðjudag kl. 20:00
Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu halda áfram sókn sinni að sæti í úrslitakeppni HM 2011, sem fram fer í Þýskalandi. Á þriðjudag kl. 20:00 er mikilvægur heimaleikur á leiðinni að þeim áfanga - leikur gegn Króatíu á Laugardalsvellinum sem hefst kl. 20:00.
Með 2-0 sigri á Norður-Írum var stigið mikilvægt skref í þessari baráttu og næsta skref er leikurinn við Króatíu. Fjölmennum á völlinn og styðjum vel við bakið á stelpunum okkar.
Miðaverði er stillt í hóf, 1.000 krónur kostar fyrir 17 ára og eldri en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri.