Byrjunarliðið gegn Norður-Írum á laugardag
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þálfari A-landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Norður-Írlandi, en liðin mætast á Laugardalsvelli kl. 16:00 á laugardag. Leikurinn er sá fyrri í gríðarlega mikilvægri tveggja leikja hrinu og stelpurnar okkar ætla sér sigur. Seinni leikur hrinunnar er á þriðjudag gegn Króatíu kl. 20:00, einnig á Laugardalsvelli.
Uppstillingin er nokkuð hefðbundin, 4-3-3 / 4-5-1.
Markvörður
Þóra B. Helgadóttir
Hægri bakvörður
Guðný B. Óðinsdóttir
Vinstri bakvörður
Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir
Katrín Jónsdóttir fyrirliði og Sif Atladóttir
Varnartengiliður
Edda Garðarsdóttir
Miðtengiliðir
Katrín Ómarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir
Hægri kantmaður
Rakel Logadóttir
Vinstri kantmaður
Hólmfríður Magnúsdóttir
Miðframherji
Margrét Lára Viðarsdóttir
Sigurður Ragnar tilkynnti 22 manna hóp fyrir leikina tvo og fyrir utan hópinn að þessu sinni verða Katrín Ásbjörnsdóttir, Sandra Sigurðardóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Silvía Rán Sigurðardóttir.