Hópurinn valinn fyrir leikina gegn Norður Írlandi og Króatíu
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag á blaðamannafundi þá 22 leikmenn sem hann velur fyrir leikina gegn Norður Írlandi og Króatíu. Leikirnir verða báðir á Laugardalsvelli, Norður Írar verða mótherjarnir laugardaginn 19. júní og Króatar þriðjudaginn 22. júní.
Þrír nýliðar eru í hópnum: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir úr Stjörnunni, Katrín Ásbjörnsdóttir úr KR og Silvía Rán Sigurðardóttir úr Þór.
Ísland þegar leikið útileiki sína gegn þessum þjóðum í þessari undankeppni. Liðið lagði Norður Íra í október á síðasta ári með einu marki gegn engu og Króatar voru lagði í mars með þremur mörkum gegn engu.