Opin æfing hjá Blikum
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands verður í samstarfi við félögin í Pepsí-deildunum í sumar um að opna aðgang að meistaraflokksæfingum. Breiðablik ríður á vaðið en fimmtudaginn 10. júni er öllum knattspyrnuþjálfurum landsins boðið að koma og fylgjast með æfingu meistaraflokks karla.
Ólafur Kristjánsson þjálfari liðsins mun svara spurningum í lok æfingarinnar. Æfingin hefst 17:15 og hún fer fram á grassvæðinu fyrir aftan nýju stúkuna á Kópavogsvellinum.
Stefnt verður að því að opna fyrir æfingar hjá yngri flokkum síðar.