Hádegisfundur ÍSÍ - Alvarleiki, umfang og eðli kynferðisofbeldis
Næsti hádegisfundur ÍSÍ verður haldinn þriðjudaginn 8. júní nk. í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00 - 14.00. Hann verður helmingi lengri en vant er, eða tvær klukkustundir í stað einnar. Fundarefnið að þessu sinni er alvarleiki, umfang og eðli kynferðisofbeldis.
Fyrirlesarar verða Fríða Rós Valdimarsdóttir og Kristbjörg Kristjánsdóttir frá STERK – samtökum gegn mannsali og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir höfundur bókarinnar „Ofbeldi á Íslandi: Á mannamáli“.
Fundurinn er haldinn fyrir tilstuðlan mennta- og menningarmálaráðuneytisins.