Byrjunarliðið gegn Andorra í dag
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari tilkynnti leikmönnum sínum byrjunarliðið í vináttulandsleiknum gegn Andorra í dag á fundi að loknum morgunverði. Ólafur stillir upp í nokkuð hefðbundið 4-3-3 leikkerfi - Fjögurra manna varnarlína, einn varnartengiliður, tveir fyrir framan hann, sókndjarfir kantmenn og einn miðframherji.
Markvörður
Gunnleifur Gunnleifsson
Hægri bakvörður
Skúli Jón Friðgeirsson
Vinstri bakvörður
Indriði Sigrðsson
Miðverðir
Sölvi Geir Ottesen Jónsson og Jón Guðni Fjóluson
Varnartengiliður
Ólafur Ingi Skúlason
Tengiliðir
Gylfi Þór Sigurðsson og Birkir Bjarnason
Hægri kantur
Rúrik Gíslason
Vinstri kantur
Jóhann Berg Guðmundsson
Framherji
Heiðar Helguson (fyrirliði)
Baldur Sigurðsson úr Keflavík var kallaður inn í hópinn í gærkvöldi. Baldur hefur leikið 3 A-landsleiki.