Lokaæfing fyrir leikinn við Andorra
Lokaæfing íslenska landsliðsins fyrir leikinn við Andorra fór fram á æfingasvæði Fram seinnipartinn í dag, föstudag. Lið Andorra æfði á Laugardalsvellinum á sama tíma.
Íslenski hópurinn er vel stemmdur fyrir leikinn og menn staðráðnir í að sanna sig fyrir landsliðsþjálfaranum Ólafi Jóhannessyni, sem mun tilkynna byrjunarliðið á leikdag, líklegast 2-3 klukkustundum fyrir leik.
Myndirnar með þessari frétt tók búningastjórinn glaðbeitti, Björn Gunnarsson.