Nýliðarnir vinsælir hjá fjölmiðlum
A-landslið karla æfði á Laugardalsvellinum síðdegis í dag, fimmtudag, og var æfingin opin fjölmiðlum til að taka viðtöl og myndir. Nýliðarnir Birkir Bjarnason og Gylfi Sigurðsson voru vinsælir í viðtöl. Aðstæður á Laugardalsvelli voru eins og best verður á kosið og völlurinn í góðu standi fyrir leikinn við Andorra á laugardag.