Haraldur inn í hópinn fyrir Kristján Örn
Kristján Örn Sigurðsson hefur dregið sig út úr landsliðshópnum fyrir vináttulandsleikinn gegn Andorra á Laugardalsvelli á laugardag. Kristján Örn er meiddur og getur því ekki tekið þátt. Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur valið Harald Frey Guðmundsson úr Keflavík í hópinn í stað Kristjáns.
Haraldur Freyr Guðmundsson hefur leikið tvo A-landsleiki fyrir Ísland, báða ári 2005.