Fjórir leikmenn í lyfjapróf á æfingu í gær
A-landslið karla æfði á KR-vellinum í gær. Góð stemmning er í hópnum og allir leikmenn klárir í slaginn gegn Andorra á laugardag. Lyfjaeftirlitið mætti á æfinguna eins og oft tíðkast og voru fjórir leikmenn kallaðir í lyfjapróf - þeir Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Veigar Páll Gunnarsson og Ólafur Ingi Skúlason.