Andorra lék fyrsta landsleikinn 1996
Knattspyrnulandslið Andorra lék sinn fyrsta opinbera leik árið 1996, 1-6 tap á heimavelli gegn Eistlandi í vináttulandsleik. Liðið tók fyrst þátt í undankeppni stórmóts fyrir EM 2000 og var þá með Íslandi í riðli. Andorra hefur aðeins unnið þrjá leiki á þessum tíma, gegn Hvíta-Rússlandi, Albaníu og Makedóníu. Sigrarnir gegn tveimur fyrrnefndu liðunum voru báðir 2-0 og eru það jafnframt stærstu sigrar Andorra. Stærsta töpin komu hins vegar gegn Tékklandi (1-8) og Króatíu (0-7). Andorra hefur gert 8 jafntefli.