Æft við góðar aðstæður á Fylkisvellinum í morgun
A landslið karla æfði á Fylkisvelli í Árbænum í morgun við fínar aðstæður. Eins og fyrr hefur komið fram eru 10 leikmenn á U21 aldri í hópnum og því er mikill munur á meðalaldri yngra og eldra liðsins þegar skipt er í lið.
Ólafur Ingi Skúlason var að sögn viðstaddra afar góður á þessari æfingu, enda uppalinn Fylkismaður og því á heimavelli. Myndirnar sem fylgja þessari frétt eru teknar af hinum fagurskeggjaða liðsstjóra landsliðsins, Birni Gunnarssyni.