Hækkað um fjögur sæti síðan í janúar
Íslenska karlalandsliðið situr í 90. sæti nýútgefins styrkleikalista FIFA. Þetta er hækkun um eitt sæti frá síðasta mánuði og hefur liðið því hækkað um fjögur sæti síðan í janúar á þessu ári. Næstu mótherjar Íslands, Andorra, eru áfram í 201. sæti, en liðin mætast í vináttulandsleik á Laugardalsvellinum kl. 16:00 næstkomandi laugardag. Ef einungis Evrópuþjóðir eru teknar með í reikninginn er Ísland í 42. sæti.