Frítt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland - Andorra
KSÍ hefur ákveðið að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum ókeypis aðgang að vináttulandsleik Íslands og Andorra sem fram fer á Laugardalsvelli 29. maí næstkomandi kl. 16:00.
Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu KSÍ frá fimmtudeginum 27. maí til og með föstudeginum 28. maí, gegn framvísun viðeigandi skírteina.
KSÍ vill hvetja fólk til að nýta tækifærið, koma á Laugardalsvöll, upplifa stemmninguna og styðja við bakið á strákunum okkar í þessum vináttulandsleik.
Miðasala á leikinn er í gangi í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
Við erum öll í íslenska landsliðinu!