Tveir nýliðar í hópnum gegn Andorra
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið landsliðshóp sinn er mætir Andorra í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, laugardaginn 29. maí næstkomandi. Tveir nýliðar eru í landsliðshópnum og í tuttugu manna landsliðshóp eru tíu leikmenn sem ennþá eru gjaldgengir U21 landsliðið.
Miðasala á leikinn er þegar hafin en boðið er uppá tvö verð í forsölu, 2.000 og 1.000 krónur. Miðaverð hækkar um 500 krónur ef keyptur er miði á leikdag. Börn yngri en 16 ára fá miðann með 50% afslætti.