Þóroddur og Frosti dæma í Hollandi
Þeir Þóroddur Hjaltalín og Frosti Viðar Gunnarsson eru við dómarastörf þessa dagana í Hollandi en þar fer fram keppni í 6. riðli undakeppni EM hjá U19 karla. Þóroddur mun dæma tvö leiki keppninnar og Frosti verður aðstoðardómari á þremur leikjum.
Þjóðirnar sem eigast við í þessum riðli eru auk heimamanna, Slóvakía, Þýskaland og Pólland. Fyrstu leikirnir fór fram í gær, þriðjudag en leikið verður svo á fimmtudag og sunnudag.