Blaðamannafundur í beinni - Landsliðshópurinn tilkynntur
Á morgun, miðvikudaginn 19. maí mun Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari tilkynna landsliðshóp sinn er mætir Andorra í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, laugardaginn 29. maí kl. 16:00. Haldinn verður blaðamannafundur í höfuðstöðvum KSÍ kl. 13:00 þar sem hópurinn verður tilkynntur. Sýnt verður frá fundinum í beinni útsendingu hér á síðunni en hægt er að sjá frá fundinum með því að smella á "Í beinni" hægra megin á forsíðunni eða að smella á tengilinn hér að neðan.