Kristinn í fagráð úrvalsdómara
Kristinn Jakobsson hefur verið kosinn í einskonar fagráð úrvalsdómara (UEFA Referee Consultative Panel), þ.e. UEFA dómarar sem eru í Elite og Premier hópum. Það eru dómararnir sjálfir sem kjósa í þetta ráð.
Fyrsti fundurinn verður í tengslum við úrslitaleik Evrópudeildar UEFA sem fer fram í Hamborg á miðvikudaginn. Ásamt Kristni í þessu fagráði eru dómararnir Massimo Busacca frá Sviss, Frank De Bleeckere frá Belgíu og Roberto Rosetti frá Ítalíu.