Ólöglegur leikmaður hjá Álftanesi
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni kvenna hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Halla Jónasdóttir lék ólögleg með Álftanesi gegn Selfossi í Lengjubikar kvenna, 1. apríl síðastliðinn. Halla er skráð í Stjörnuna.
Í samræmi við ofangreinda reglugerð skulu úrslit standa óbreytt, 5 - 0.