U19 kvenna - Naumt tap gegn Rússum
Stelpurnar í U19 töpuðu naumlega gegn Rússum í dag en þetta var annar leikur liðsins í milliriðli fyrir EM. Rússar komust yfir á 37. mínútu og var það eina mark leiksins. Fyrr í dag unnu Spánverjar Tékka með fimm mörkum gegn engu.
Leikurinn í dag var hörkuleikur og réð íslenska liðið ferðinni í fyrri hálfleik og var mark Rússa heldur gegn gangi leiksins. Rússar héldu svo fengnum hlut þrátt fyrir góðar tilraunir stelpnanna.
Lokaleikur liðsins verður á fimmtudaginn þegar leikið verður við Tékka. Efsta lið riðilsins tryggir sér sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í maí í Makedóníu. Sú þjóð sem verður með bestan árangur í öðru sæti riðlanna sex, kemst einnig áfram í úrslitakeppnina.