Leikdagar Íslands í undakeppni EM 2012 tilbúnir
Í dag var dregið um leikdaga í riðli Íslands í undankeppni EM 2012 en dregið var á fundi framkvæmdastjórnar UEFA sem fram fer í Tel Aviv. Íslendingar byrja leik í keppninni með því að taka á móti Norðmönnum á heimavelli, 3. september næstkomandi.
Leikdagar Íslands eru eftirfarandi:
Heimaleikir
Noregur - 3. september 2010
Portúgal - 12. október 2010
Danmörk - 4. júní 2011
Kýpur - 6. september 2011
Útileikir
Danmörk - 7. september 2010
Kýpur - 26. mars 2011
Noregur - 2. september 2011
Portúgal - 7. október 2011