Þrjú félög í 1. deild uppfylla einnig allar lykilkröfur í Pepsi-deild
Þrjú félög í 1. deild karla uppfylla ekki eingöngu allar lykilkröfur leyfisreglugerðarinnar fyrir félög í 1. deild, heldur uppfylla þau einnig allar lykilkröfur fyrir félög í Pepsi-deildinni 2010. Þessi félög eru HK, ÍA og Víkingur R. Þessi félög leika nú þegar á leikvöngum sem uppfylla allar mannvirkjakröfur Pepsi-deildar.
Aðlögunarfrestur fyrir þau félög sem leika á leikvöngum er uppfylla ekki allar kröfur fyrir leikvang í efstu deild er til upphafs keppnistímabilsins 2012, gegn því að ákveðin bráðabirgðaskilyrði séu uppfyllt. Þróttur R. og Fjölnir, sem féllu úr Pepsi-deildinni 2009, eru á meðal félaga sem leika á leikvöngum sem uppfylla þau bráðabirgðaskilyrði.