Þrír nýliðar í byrjunarliðinu er mætir Færeyingum
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Færeyjum í vináttulandsleik. Leikurinn fer fram í Kórnum á morgun, sunnudag og hefst kl. 12:00. Þrír nýliðar eru í byrjunarliðinu að þessu sinni.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Gunnleifur Gunnleifsson
Hægri bakvörður: Skúli Jón Friðgeirsson
Vinstri bakvörður: Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Miðverðir: Valur Fannar Gíslason og Jón Guðni Fjóluson
Tengiliðir: Bjarni Guðjónsson, fyrirliði, Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson
Hægri kantur: Steinþór Freyr Þorsteinsson
Vinstri kantur: Jóhann Berg Guðmundsson
Framherji: Kolbeinn Sigþórsson
Miðasala verður í Kórnum og opnar hún klukkustund fyrir leik eða kl. 11:00. Miðaverð er 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri.