Claus Bo Larsen dæmir Ísland - Færeyjar
Dómari í vináttulandsleik Íslands og Færeyja verður Claus Bo Larsen frá Danmörku. Þessi reyndi dómari dæmdi m.a. leik Liverpool og Chelsea í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar UEFA árið 2009 og einnig leik Manchester United og Liverpool í undanúrslitum sömu keppni. Þá dæmdi hann úrslitaleik Ofurbikarsins (Super Cup) árið 2008 þegar Zenit Petersburg og Manchester United léku í Monaco.
Þeir sem aðstoða Claus Bo Larsen í Kórnum á sunnudaginn verða þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Einar Sigurðsson. Fjórði dómari verður Þorvaldur Árnason.