A passar 2009 gilda við innganginn í Kórnum
Handhafar A passa 2009 frá KSÍ geta sýnt passann við innganginn í Kórnum á vináttulandsleik Íslands og Færeyja á sunnudaginn. Ekki þarf að sækja miða á skrifstofu KSÍ fyrir þennan leik. Athugið að A passar frá 2009 gilda á þennan leik, ekki er farið að gefa út passa fyrir árið 2010.
Miðasala í Kórnum hefst kl. 11:00 á sunnudaginn og opnar húsið um leið. Leikurinn sjálfur hefst svo kl. 12:00