Ólafur Þór í viðtali - Jafn og breiður hópur
Á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag tilkynnti Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hópinn er leikur í milliriðli EM í Rússlandi. Leikið verður dagana 27. mars - 1. apríl og heimasíðan hitti Ólaf Þór í dag og spurði hann út í verkefnið. Það var fyrrum afgreiðslumaður Söluskálans á Húsavík, Dagur Sveinn Dagbjartsson, sem spurði Ólaf Þór spjörunum úr.