Hópurinn valinn er mætir Serbíu og Króatíu
Á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag tilkynnti Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, landsliðshóp sinn er leikur gegn Serbíu og Króatíu. Leikirnir fara fram ytra 27. og 31. mars og eru í undankeppni fyrir HM 2011.
Hópurinn er leikreyndur og einungis tveir leikmenn sem hafa leikið færri en 10 landsleiki, þær Dagný Brynjarsdóttir og Thelma Björk Einarsdóttir báðar úr Val, en þær léku sína fyrstu A landsleiki á nýafstöðnu Algarve Cup.
Ísland er sem stendur í öðru sæti riðilsins, með níu stig eftir fjóra leiki. Frakkar leiða riðilinn og hafa fullt hús eftir fjóra leiki.
Þetta er í fyrsta skiptið sem Ísland og Króatía mætast í A landsleik kvenna en Ísland hefur þrisvar mætt Serbíu og unnið alla þá leiki.