Samstarfssamningur KSÍ og Icelandair Hotels
Í dag var endurnýjaður samstafssamningur á milli Knattspyrnusambands Íslands og Icelandair Hotels. Samningurinn felur í sér að öll landslið Íslands í knattspyrnu gista á hótelum Icelandair Hotels.
Samstarf KSÍ og Icelandair Hotels stendur á traustum grunni og hefur staðið yfir í mörg ár. Það er því mikið ánægjuefni að þetta samstarf heldur áfram næstu árin.
Það voru þeir Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ og Ingólfur Haraldsson hótelstjóri sem að skrifuðu undir samstarfssamninginn í dag.