Dregið um leikdaga í næstu viku
Fulltrúar þjóða sem leika í H riðli, undankeppni EM 2012, hittust í dag í Kaupmannahöfn. Fundarefnið var leikdagar riðilsins en ekki náðist samkomulag á milli þjóðanna verður því dregið um leikdaga. UEFA sjá um dráttinn í næstu viku.
Þjóðirnar í riðlinum eru, ásamt Íslendingum: Portúgal, Danmörk, Noregur og Kýpur en fyrstu leikirnir verða í september, síðar á þessu ári.