Landsliðshópurinn er mætir Færeyjum og Mexíkó
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er mætir Færeyjum og Mexíkó í vináttulandsleikjum í mars. Leikurinn við Færeyjar fer fram í Kórnum, sunnudaginn 21. mars en leikið verður við Mexíkó í Charlotte í Bandaríkjunum, miðvikudaginn 24. mars.
Þar sem ekki er um alþjóðlega leikdaga að ræða þá er hópurinn að langmestu leyti skipaður leikmönnum sem leika hér á landi. Fjórir nýliðar eru í hópnum að þessu sinni og sjö leikmenn hafa einungis leikið einn landsleik. Tveir leikmenn af tuttugu manna hóp hafa leikið fleiri en 10 landsleiki, þeir Bjarni Guðjónsson og Gunnleifur Gunnleifsson.